Pages

Tuesday 25 January 2011

sætt


Suma daga, eða sum kvöld réttara sagt, brýst út í mér þessi óstjórnanlega sykurþörf. Ég ráfa um eldhúsið, opna skúffur, skápa og geng fram og aftur, í von um að það birtist eitthvað. Ekki nenni ég þó að skreppa út í sjoppu, svo mikinn metnað hef ég nú ekki. Áðan gat ég engann veginn stillt mig mig langaði svo í eitthver sætindi, svo ég bakaði þessa líka dýrinds marengstoppa bæði bleika og lillabláa. Síðan snæddi ég þá með vanilluís af bestu lyst!
nom nom nom nom nom nom.

3 comments:

  1. Váá hvað þetta lítur girnilega út!

    Vaka

    P.S. Ég á það til að gera nákvæmilega það sama, að ráfa svona um eldhúsið í leit að einhverju ; )

    ReplyDelete
  2. kannast mjög við þetta, eini gallinn hjá mér að það er 10-11 5 skref frá og er opin allan sólarhringinn, mjög hættulegt. haha.

    Girnilegir marengstoppar :)

    x

    ReplyDelete
  3. Bloggið þitt er frábært, var að finna það. strax í uppáhalds.

    xxx

    ReplyDelete